Skip to Store Area:

Magento Commerce

Skilmálar

Meginupplýsingar
Þessi skilmáli gildir um sölu á vöru og þjónustu Skinhope til neytenda. Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum.
Skilgreining
Seljandi er Skinhope.is
Arnarsmára 22
201 Kópavogi
kennitala: 460203-2280.
Upplýsingar
Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef að varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.
Greiðslur
Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu eða greiðslukortum. Ef greitt er með bankamillifærslu eru vörur fráteknar á lager þar til greiðsla berst. Vörur eru fráteknar í 1 dag með tilliti til frídaga, ef millifærsla berst ekki innan þess tíma er pöntun aflýst.
Yfirferð á vörum
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna.
Réttur við galla eða vöntun
Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. 
Persónuvernd
Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang.
Eignarréttur
Seldar vörur eru eign seljanda  þar til kaupverð er að fullu greitt.
Þjónusta og upplýsingar
Kaupanda er bent á að senda tölvupóst á karen@skinhope.is ef viðkomandi er með einhverjar spurningar varðandi vöruna.